Ananasostakaka
Botn:
100 gr smjör
1 dl púðursykur
Tæpur pakki af Haust hafrakexi
Fylling:
300 gr rjómaostur
2 tsk vanilludropar
¾ bolli sykur
1 dós ananaskurl (millistærð)
Ofan á:
Sítrónufrómas eða ananasfrómas (búin til úr pakka eftir leiðbeiningum)
1 peli rjómi (þeyttur)
Smjör og púðursykur brætt saman, setjið mulið hafrakexið saman við og látið í
form, aðeins upp á kanta, og látið kólna í ísskáp.
Hrærið saman rjómaost vannilludropa sykur og ananas og setjið á botninn, kælið í
ísskáp.
Frómas og rjóma blandað saman og sett yfir ostakökuna.