Amarula ostakaka
170 g kanilkex
4 msk. smjör, brætt
500 g rjómaostur
200 g sykur
4 egg
200 g vanilluskyr
1 dl Amarula
200 g súkkulaði, brætt
2 tsk. vanilludropar
Krem
80 g súkkulaði
2 msk. Amarula
Hitið ofninn í 180 gráður. Malið kanilkex fínt, hellið smjöri út í og blandið
saman. Setjið bökunarpappír í botninn á smelluformi og þekið með kexblöndunni
sem þrýst er niður í botninn. Hrærið rjómaost og sykur vel sman og bætið eggjum
í, einu í senn. Setjið vanilluskyr, Amarula, súkkulaði og vanilludropa út í og
blandið vel. Þó blandan skilji sig er engin hætta á ferðum
því hún jafnar sig við baksturinn. Bakið ostakökuna í að minnsta kosti
klukkustund, þegar hún er fullbökuð á miðjan að vera eins og þykkur grautur.
Kælið kökuna í minnst sex klukkustundir áður en kremið er sett yfir hana. Best
er raunar að geyma hana yfir nótt. Kremið er búið til með því að bræða súkkulaði
og bæta Amarula líkjör útí. Því er síðan hellt yfir kökuna og hún skreytt með
berjum ef þau eru við hendina.
