Vínarterta (Fréttablaðið)

1 kg hveiti
500 gr sykur
3 tsk ger
500 gr smjör
5-6 egg

Þurrefnum er blandað saman, smjörið mulið í og vætt í með eggjunum og mjólk ef með þarf. Deigið er hniðað vel og gott er að leyfa því að standa og jafna sig. Síðan er því skipt í fjórahluta og hver hluti flattur í stóra ferkantaða köku sem lögð er á plötu. Gott er að hafa bökunarpappír undir. Kökurnar bakaðar ljósar og og sulta sett á þær heitar. Athugið að fyrstu kökunni er hvolft áður en sultan er sett á hana.