Vatnsdeigsbollurnar úr smiðju Davíðs Freys Jóhannssonar hjá Mosfellsbakaríi eru
vægast sagt girnilegar.
Innihald:
175 g smjörlíki
310 g vatn
185 g hveiti
4 egg (50 g stykkið)
Hnífsoddur af hjartasalti sett í lokin.
Aðferð: Vatn og smjörlíki sett í pott og hitað að suðu. Potturinn tekinn af hita
og hveitið sett út í. Hrært vel með sleif þar til deigið er kekkjalaust og
losnar frá börmum pottsins. Eggin sett saman við, eitt í einu, og hrært mjög vel
á milli. Deigið á að vera algjörlega slétt og kekkjalaust en nógu þykkt til að
halda lögun sinni. Sett með skeið eða sprautað úr sprautupoka. Hafið gott bil á
milli bollanna. Bakið við um það bil 200 C° í um það bil 15-18 mín., mismunandi
eftir ofnum.