ÞÝSK VERÐLAUNATERTA


170 g smjör
150 g hrásykur
5 eggjarauður
100 g brauðrasp
1 msk. spelthveiti (vel sigtað)
5 stífþeyttar eggjahvítur
200 g brætt suðusúkkulaði


Smjör, eggjarauður og hrásykur er þeytt
vel saman. Brauðraspi, spelthveiti, stífþeyttum
eggjahvítum og suðusúkkulaði
bætt saman við.
Kakan er bökuð í u.þ.b. 30 mínútur við 175
gráður.
Apríkósumarmelaði frá Himneskri hollustu
er smurt yfir og um 150 g af suðusúkkulaði
brædd með 30 g smjöri, smurt yfir tertuna
og skreytt með granateplum.