Þórukaka (karamellukaka)

150 g smjörlíki
150 g sykur
þeyta saman og bæta eggjum út í
einu í senn
3 egg
150 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
2 tsk. kakó – best að sigta
Hrærið alla dýrðina saman. Smyrjið á bökunarpappír og bakið í 10 mínútur við 180-200 gráður. Látið kólna aðeins og skerið kökuna í þrjá jafna hluta. Látið kólna alveg og klippið pappírinn eftir skurðinum svo kökuhlutarnir brotni ekki.

Karamellubráð

2 dl rjómi
120 g sykur
2 msk. síróp – vel fullar skeiðar
Setja í pott og láta sjóða. Fylgjast vel með bráðinni því hún sýður auðveldlega upp úr ef hitinn er of hár. Sjóða rólega í um 40 mínútur eða þar til bráðin loðir vel við skeiðina. Þá er potturinn tekinn af hlóðunum, 1 msk. af smjöri bætt út í svo bráðin verði ekki of stíf, því næst 1 tsk. vanilludropar og kakó ef manni sýnist svo, þá verður bráðin dökk og falleg. Setja bráðina á milli laga og að lokum yfir kökuna alla. Skreytt með smartís. Hættulega góð með ískaldri fjörmjólk.