Svissnesk gulrótakaka
2 sítrónur
6 egg, aðskilin
300 g sykur
300 g gulrætur, rifnar fínt
300 g möndlur, malaðar
75 g maísmjöl
2 tsk lyftiduft
1/4 tsk kanell
Ofninn hitaður í 180 gráður. Börkurinn rifinn
af sítrónunum og safinn
kreistur úr annarri þeirra. Eggjarauðurnar þeyttar vel með helmingnum af
sykrinum ásamt sítrónusafanum og berkinum. Rifnu gulrótunum og möndlunum
blandað varlega saman við. Maísmjöl, lyftiduft og kanell sigtað yfir og
blandað saman við með sleikju. Hvíturnar stífþeyttar og blandað varlega
saman við. Hellt í fremur stórt tertuform og bakað í um 1 klst, eða þar til
kakan er svampkennd í miðju. Þá er henni hvolft á grind og hún látin kólna.