Svartaskógskaka
80 g hveiti
50 g kakó
¼ tsk lyftiduft
125 g smjör
6 stór egg
2 eggjarauður
225 g sykur
1.
Setjið ofninn á 160°C með blæstri
2.
Smyrjið 24 cm hringlótt kökuform með smjöri og setjið bökunarpappír í botninn ef
þörf krefur og stráið dálitlu af hveiti yfir.
3.
Sigtið saman hveiti, kakó og lyftiduft
4.
Bræðið smjörið á lágum hita.
5.
Hrærið hratt saman öllum eggjunum, eggjarauðunum og sykrinum í hrærivél þar til
úr verður hvít og þykk blanda. Minnkið þá hraðann á lægstu stillinguna og bætið
smám saman hveitiblöndunni saman við með einni matskeið í einu og hrærið í 1 til
2 mínútur eða þar til allt hefur blandast vel saman.
6.
Hellið bræddu smjörinu saman við og blandið vel saman með sleikju. Hrærið
varlega svo deigið haldi lyftingunni.
7.
Hellið deiginu í kökumót og bakið í hámark 45 mínútur. Athugið kökuna eftir 25
mínútur með því að stinga tannstöngli í hana. Ef hann kemur blautur út þá er
kakan ekki tilbúin en ef hann er þurr er hún fullbökuð. Kælið.
Skreyting:
500 ml rjómi. Þeytið og kælið í ísskáp.
300 g bökunarsúkkulaði. Brotið niður og bræðið.
Hellið á bökunarpappír og dreifið jafnt út og mátulega. Ekki of þykkt en ekki
heldur of þunnt! Kælið þar til harðnar (u.þ.b. 10 mín.)
4 msk kirsuberjasulta (t.d. frá Den Gamle Fabrik).
8 kokteilber með stilkum
Skerið kökuna varlega þvert í miðju. Setjið annan helminginn á disk og smyrjið kirsuberjasultunni yfir og setjið því næst helmingana saman. Dreifið rjómanum jafnt yfir alla kökuna en geymið þó smá rjóma til að skreyta með rjómasprautu. Brjótið bökunarsúkkulaðið í bita og skreytið alla kökuna með því. Gerið átta rjómarósir ofan á kökuna og setjið kirsuberin ofan á.
