Súkkulaðiterta Geysis

BOTN

4 stk. egg

2 dl sykur

200 g smjör

200 g suðusúkkulaði

1 dl hveiti

 

Stífþeytið egg og sykur. bræðið smjör og súkkulaði yfir vatnsbaði. Kælið örlítið. Blandið síðan saman við egg og sykur, ásamt hveiti. Hrærið öllu varlega saman. Bakað í 40 mínútur á 170°c.

KREM

70 g smjör

150 g suðusúkkulaði

2 msk. síróp

Setjið allt saman í skál og bræðið yfir vatnsbaði. Látið kólna örlítið. Smyrjið síðan yfir botninn. Borið fram með ferskum ávöxtum, rjóma eða ís. Einnig gott að hafa allt með.