Súkkulaðiostaterta
14 stk haustkex
1/4 tsk kanill (blandaður sykri)
100 gr bræddur smjörvi
1/4 lítri rjómi
2 eggjahvítur
250 gr rjómaostur
1 dl sykur
2 eggjarauður
100 gr súkkulaði
Myljið
kexið og setjið saman við brætt smjörið og kanilinn. Setjið svo í botninn á
form.
Rjóminn er þeyttur og eggjahvíturnar stífþeyttar.
Rjómaosturinn er hrærður með sykri og eggjarauðum. Súkkulaðið er brætt og sett
saman við.
Síðast er rjómanum og hvítunum bætt í . Þetta er sett ofan á kexbotninn.
Skreytið með jarðaberjum.