Súkkulaðimúffur

3 egg
100 g sykur
100 g smjör
100 g súkkulaði
2 tsk skyndikaffiduft eða 1 tsk vanilluessens
125 g hveiti
1 tsk lyftiduft

Ofninn hitaður í 180 gráður. Eggin þeytt vel með sykrinum. Smjör, 50 g
súkkulaði og skyndikaffiduft sett í pott og hitað þar til allt er bráðið og
samlagað (ef notaður er vanilluessens er hann ekki hitaður með). Þeytt saman
við eggin. Hveiti og lyftidufti blandað saman við og að lokum er afgangurinn
af súkkulaðinu brytjaður og hrært saman við með sleikju. Skipt á 12
pappírsklædd múffuform og bakað í um 15 mínútur, eða þar til múffurnar eru
svampkenndar og hafa lyft sér vel. Má borða volgar.