Súkkulaðikaka ömmu
3 1/3 bolli hveiti
2/3 bolli kakó
2 bollar sykur
1 tsk. salt
2 tsk. natron
1 bolli smjörlíki, um 200g
2 bollar súrmjólk
Krem:
100-120 g smjör
3 msk. kakó
7 msk. mjólk
3 bollar flórsykur
Þurrefnum blandað saman í skál. Smjörlíkið brætt og blandað við súrmjólkina,
öllu blandað saman og sett í ofnskúffu eða 2-3
form, eftir því hvernig maður vill hafa kökuna. Bakað við 180°C í um 30-35 mín.
í skúffu eða 17-18 mín. í hringformum.
Best er að stinga prjóni í kökuna til að vera viss um að hún sé tilbúin.
Krem: Bræðið smjörið yfir vatnsbaði og blandið kakóinu út í. Ef tíminn er naumur
er líka hægt að bræða það á lágri stillingu í
örbylgjuofni og passa að það ofhitni ekki. Blandið mjólkinni út í flórsykurinn
og því næst þessu tvennu saman.