Súkkulaðikaka með banana-vorrúllu og kanil-mjólkurís

Kakan - hráefni:

4 egg

150 g sykur

185 g dökkt súkkulaði

110 g ósaltað smjör

60 g hveiti

Kakan - aðferð:

Egg og sykur þeytt saman á meðan súkkulaðið og smjörið er brætt saman á lágum hita. Svo er súkkulaði- og smjörblöndunni blandað saman við egg- og sykurblönduna og hveitið hrært út í.

Vorrúllan - hráefni:

1 banani

50 g dökkt súkkulaði

4 bréf vorrúlludeig (won ton)

1 eggjarauða

Vorrúllan - aðferð:

Bananinn og súkkulaðið skorið í litla teninga og um 1 msk. Af blöndunni sett á hvort won tonbréf og því rúllað saman og lokað með eggjarauðunni. Bakað í 180°C í 8 mín.

Ísinn - hráefni:

5 dl mjólk

1 dl sykur

2 kanilstangir

Ísinn - aðferð:

Öllu hráefni er blandað saman í pott og látið krauma í um 15 mín. Blöndunni er svo hellt í skál og sett inn í frysti. Klukkustund fyrir notkun er gott að þeyta hann í matvinnsluvél og frysta aftur.

Súkkulaðikaka