Súkkulaði-karamellukaka
2 tsk skyndikaffi (eða sjá hér fyrir ofan)
2 msk sjóðandi vatn
2 msk kakóduft
225 g smjör, lint
175 g sykur
2 egg
2 msk ljóst síróp
200 g hveiti
2 tsk lyftiduft
6 msk mjólk
3 karamellufyllt Cadbury's súkkulaðistykki, eða 150 g annað karamellufyllt
súkkulaði
100 g flórsykur, sigtaður
Ofninn hitaður í 180 gráður og meðalstórt
tertuform smurt og botninn
pappírsklæddur. Kaffiduft, vatn og kakóduft sett í bolla og hrært þar til
blandan er slétt. 175 g smjör sett í skál ásamt sykri, eggjum, sírópi og
kakó/kaffiblöndunni og hrært þar til blandan er alveg slétt. Hveiti,
lyftidufti og 4 msk mjólk hrært saman við og að lokum er eitt
súkkulaðistykkið skorið í fremur stóra bita og hrært saman við. Sett í
formið, jafnað og bakað í 20-25 mínútur, eða þar til kakan er svampkennd og
farin að losna frá börmunum. Þá er henni hvolft á grind og hún látin kólna.
Afgangurinn af smjörinu settur í pott ásamt 2 msk af mjólk, súkkulaðið sem
eftir er brotið í bita og sett út í, og síðan er þetta hitað rólega og hrært
stöðugt þar til blandan er alveg slétt. Potturinn tekinn af hitanum og
flórsykrinum hrært rösklega saman við. Látið kólna þar til blandan er
þykkfljótandi og þá er kakan sett á fat og kreminu hellt yfir, þannig að það
renni dálítið niður eftir hliðunum. Ef sett er skraut á kökuna er það gert
áður en kremið storknar alveg.