Súkkulaði- og karamellubitar (ekki vitund heilsusamlegir)
225 g smjör
225 g sykur
1 tsk vanilluessens
4 egg
150 g súkkulaðidropar eða dökkt súkkulaði, saxað
100 g karamelludropar (fudge chips)
150 g hveiti
1/2 tsk lyftiduft
Ofninn hitaður í 170 gráður og ferkantað form
klætt innan með bökunarpappír
(það sem ég notaði var eins og rúmlega hálf ofnskúffan að stærð). Smjör,
sykur og vanilluessens hrært ljóst og létt og síðan er eggjunum þeytt saman
við, einu í senn. Súkkulaði- og karamelludropum hrært saman við og að lokum
hveitinu og lyftiduftinu. Jafnað í formið, sett í ofninn og bakað í um 25
mínútur, eða þar til kakan er svampkennd og farin að dökkna á jöðrunum.
Tekin út og skorin í ferninga á meðan hún er enn volg.