Súkkulaði-jarðarberjakaka

200 g suðusúkkulaði
175 g smjör
150 ml jarðarberjasulta
4 egg
150 g sykur
1 msk jarðarberja- eða kirsiberjalíkjör (má sleppa)
75 g hveiti
3/4 tsk lyftiduft

Ofninn hitaður í 180 gráður og stórt tertuform smurt og pappírsklætt.
Súkkulaði og smjör brætt í vatnsbaði eða í potti við mjög vægan hita og
hrært öðru hverju. Þegar allt er samlagað er sultunni hrært saman við og
tekið af hitanum. Eggin þeytt mjög vel með sykrinum og líkjörnum síðan þeytt
saman við, ef hann er notaður. Súkkulaðiblöndunni þeytt saman við og síðan
er hveitið og lyftiduftið sigtað yfir og blandað saman við með sleikju.
Hellt í formið, sett í ofninn og bakað í um 25 mínútur (lengur ef notað er
minna form), eða þar til kakan hefur stífnað og prjónn sem stungið er í hana
kemur nokkurn veginn hreinn út. Látin kólna smástund í forminu og síðan
hvolft á grind. Látin kólna alveg.

Ég setti bara á kökuna hreint mjólkursúkkulaði, brætt með 2 msk af smjöri,
en það mætti líka pensla hana með heitri jarðarberjasultu (þynntri með
svolitlu vatni) og skreyta síðan með jarðarberjum.