Súkkulaðimakkarónur

50 g dökkt súkkulaði

115 g möndlur

3 stk eggjahvítur

225 g sykur

½ tsk vanilludropar

¼ tsk möndludropar

Flórsykur

 

Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði. Malið möndlur fínt í matvinnsluvél og setjið í skál. Blandið eggjahvítum, sykri og vanillu- og möndludropum saman við. Hrærið deigið með trésleif þar til allt er komið saman. Blandið bræddu súkkulaði saman við og hrærið rólega en ekki of mikið. Gerið litlar kúlur á plötu klædda bökunarpappír og sigtið flórsykur yfir. Bakið við 160°C í 10-12 mín.

Kökurnar eru góðar einar og sér með kaffi, og einnig er gott að setja þeyttan rjóma á milli tveggja makkaróna og bera þannig fram.