Stóra sara

Botnar 6 eggjahvítur 400 g flórsykur 400 g möndlur (heilar með hýði) Þeytið hvítur og sykur vel stíft. Blandið möluðum möndlum saman við með sleikju.

Botnar

6 eggjahvítur
400 g flórsykur
400 g möndlur (heilar með hýði)
Þeytið hvítur og sykur vel stíft. Blandið möluðum möndlum saman við með sleikju. Bakið í 2 botnum við 150° í 1 klst. Kælt.

Krem

2 1/4 dl sykur
1 1/2 dl kaffi (flestir nota vatn en kaffi gefur meira bragð)
6 eggjarauður
390 g ósaltað smjör (við stofuhita)
2 1/2 msk. kakóduft
Sjóðið saman sykur og kaffi (vatn) þar til þykknar. Þeytið eggjarauður vel og hellið sykurleginum saman við í mjórri bunu. Þeytið vel og kælið aðeins. Hrærið linu smjörinu saman við smátt og smátt. Síðan er kakó hrært í. Smyrjið hluta af kreminu milli botnanna og afganginum ofan á og á hliðarnar. Kælið vel.

Hjúpur

250 g suðusúkkulaði saxað
3/4 bolli rjómi
3 msk síróp
Hitið rjóma og síróp að suðu og hellið yfir súkkulaðið. Hellið hjúpnum yfir kökuna. Kælið.


Einnig er hægt að gera tvær einfaldar kökur. Mjög góð kaka til að eiga í frysti.