Sörur
2 eggjahvítur
2 1/2 dl flórsykur
200 g malaðar möndlur
Eggjahvítur eru stífþeyttar og hinu blandað saman við. Bakað við 180°c í 5-10
mín
Krem:
1/2 dl sýrop
2 eggjarauður
100 g smjör mjúkt
1 msk kakó
1 tsk neskaffi
Þeyta rauðurnar vel og hella sýropinu varlega út í, þá smjöri og þeytt á meðan.
Að síðustu er kakói og neskaffi bætt út í og hrært vel saman.
Kreminu er svo smurt á sléttu hliðina á kökunum. Kælt. Þá er bræddu súkkulaði
smurt yfir kremið. Það þarf u.þ.b. 150 g af súkkulaði til að hylja kökurnar.
Það er ekkert mál að gera þetta ef þú hefur pláss í frystinum til að kæka
kökurnar með kreminu og henda svo aftur inn í frystirinn meðan súkkulaðið er að
storkna.