Skyrterta með bláberjum og jarðarberjum

½ pakki hafrakex mulið
3 msk smjör
2 msk púður sykur
500 gr kea skyr (hreint, hrært)
1 ½ dl. sykur
1 egg
1 tsk vanilludropar
300 gr jarðaber
7 blöð matarlím
2 ½ dl þeyttur rjómi
250 gr. bláber + skraut.

Bræðið smjörvann á pönnu og takið svo af hitanum, látið púður sykurinn út í smjörvann, mulið kexið sett saman við. Þrýstið svo mylsnunni í botninn á stóru smelluformi. Leysið matarlímið upp samkvæmt upplýsingum. Hræðið saman í skál sykur, egg og vanilludropa og skyrið. Saxið helminginn af jarðaberjunum smátt og þeytið saman við svo þau maukist. Hrærið matarlíminu saman við og síðan þeytta rjómanum. ( nota sleikju) blandið bláberjunum saman við síðast. Síðast er hellt skyrhrærunni saman við ofan á mylsnuna og látið stífna í 4-5 tíma eða yfir nótt.