Skúffukaka a la Harpo
4 1/2 dl sykur
175 g lint smjörlíki
2 egg
4 1/2 dl hveiti
1 tsk. natron
1/2 tsk. lyftiduft
1 1/2 dl vatn (kalt)
3 tsk. vanillusykur
1 dl. kakó (dökkt)
1 tsk. salt
2 dl súrmjólk
Öllu hent í skál og hrært í hrærivél. Skúffan smurð og deigið sett í.
Bakað í 20-30 mín. við 200 gráður í miðjum ofni.
KREM:
100 gr brætt smjörlíki
Ca. 6 dl flórsykur
Þetta hrært vel saman.
3 1/2 msk. kakó (dökkt)
3 msk. kaffi (set þó eins og þarf þangað til ég finn rétta þykkt á kreminu)
3 tsk. vanillusykur
Þetta er sett út í smjörlíkis- og sykurblönduna og hrært meira.
Mér finnst best að hafa kremið frekar þunnt því þá er auðveldara að smyrja því á
kökuna.
Þá bæti ég við kaffi alveg eins og þarf þangað til ég er ánægð.
Síðan skreyti ég með skrautsykri, kókosmjöli eða því sem hentar hverju tilefni.
Þar sem þetta er frekar lítil uppskrift er hún ekki góð í stórar skúffur og
myndi ég þá tvöfalda hana í slíkum tilvikum.