Sissú-brownie
2 bollar sykur
3 egg
1 bolli bráðið smjör
2,5 tsk vanilludropar
1 ¼ bolli hveiti
¾ bollar kakóduft
½ tsk. lyftiduft
¼ tsk. salt
1 bolli súkkulaðibitar.

Hrært: Egg og sykur, smjör og vanilla, þurrefni Bakið við 180° C í 20-25 mínútur. Passið að ofbaka ekki.

Hnetusmjörskremið hennar Sissúar
1 bolli flórsykur
1 bolli hnetusmjör
5 msk. smjör
¾ tsk. vanilludropar
1/3 bolli rjómi

Hrærið saman í hrærivél Smyrjið kreminu á kökuna þegar hún hefur kólnað og stráið súkkulaðispæni yfir. Þegar búið er að setja kremið á er gott að geyma kökuna í kæli í nokkrar klukkustundir áður en hún er skorin svo hún verði þéttari í sér.