Sesamtíglar

1 bolli agavesíróp
4 msk tahini
Fersk vanilla
1 bolli ristuð sesamfræ
1 bolli ristuð graskersfræ

Setjið agavesíróp, tahini og vanillu í pott. Látið malla í 5 mínútur. Blandið öllu saman. Setjið á smjörpappírsklædda plötu, fletjið út og látið storkna. Skerið í flotta tígla. Prófið að nota rúsínur eða ristaðar furuhnetur.