Sandkaka Soffíu frænku, Sandkaka án hveitis

Hráefni:

200 g smjör
200 g kartöflumjöl
1 tsk. lyftiduft (sléttfull)
3 egg
200 g sykur
2 msk. koníak (ef vill)

 

Aðferð:

Smjörið hrært mjúkt og í það er sigtað kartöflumjöl og lyftiduft. Þeytt vel saman. Eggin og sykurinn er þeytt sér þangað til blandan er létt og ljós. Þá er smjörhrærunni bætt út í í smáum skömmtum. Að síðustu er koníakinu bætt út í ef það er notað. Deigið er sett í vel smurt kringlótt bökunarform (1½ lítra) og kakan bökuð við 175° í 40-50 mínútur. Kæld í forminu áður en henni er hvolft á disk. Kökuna má frysta. Gott að setja appelsínuglassúr eða brætt súkkulaði yfir hana. Eins má bera fram með henni ferska ávexti og þeyttan rjóma.