Sænskar piparkökur

Þessi uppskrift er einföld og fljótleg en deigið er undirbúið daginn fyrir baksturinn. Kosturinn við það er að þá er hægt að undirbúa sig í rólegheitum og útskurðurinn og tíminn saman í eldhúsinu verður öllu rólegri en þegar allt er gert samdægurs.

 

4 bollar hveiti

1 1/3 bolli sykur

¼ bolli síróp

1/3 bolli vatn

¾ bolli smjör

1 matskeið appelsínubörkur

1 matskeið kanill

½ matskeið engifer

½ matskeið negull

2 teskeiðar kardimommur

2 teskeiðar matarsódi

Bræðið saman sykur, síróp og vatn í litlum potti. Setjið smjörið ásamt kryddtegundum í skál og hellið heitri sykurblöndunni yfir. Hrærið þar til smjörið er bráðið. Kælið. Hrærið einnig saman við matarsóda og hveiti. Hnoðið deigið, hyljið og látið standa yfir nótt í kæli. Fletjið deigið og skerið út kökur í ýmsum myndum með piparkökuformum. Bakið kökurnar við 200 gráður í 5 til 8 mínútur í miðjum ofni. Fylgist vel með kökunum þar sem þær brenna auðveldlega. Kælið kökurnar og skreytið með flórsykri blönduðum matarlitum. Eins má nota skemmtilegt kökuskraut til þess að gera þær enn litríkari

Piparkokur