Sælgætis smákökur

140 g vel mjúkt smjör

3 ½ dl hveiti

1 dl grófsaxað dökkt súkkulaði

1 dl grófsaxað hvítt súkkulaði

1 dl smarties

1 dl nóa kropp

5 msk púðursykur

5 msk sykur

¾ tsk lyftiduft

½ tsk vanilludropar

1 egg

½ tsk salt

 

Hitið ofninn í 160°C  og notið blástur. Mælið allt í skál. Hrærið deigið vandlega saman með sleif og setjið með teskeið í litla toppa á bökunarplötu. Passið að hafa gott bil á milli því kökurnar renna dálítið út. Bakið efst í ofni í 8 mínútur (kökurnar eiga að vera svo lítið blautar). Leyfið kökunum að kólna á plötunni í 6 mínútur áður en þið takið þær af með kökuspaða. Raðið í box.