Rommkúluterta
3
eggjahvítur
200 g sykur
2 bollar Rice Crispies, mulið
1 tsk lyftiduft
Stífþeytið
nánast eggjahvíturnar. Bætið sykrinum við í litlum skömmtum og þeytið áfram þar
til stýfnar. Hrærið lyftidufti og Rice Crispies saman við með sleif. Bakið í
tveimur hringlaga formum, um 24 sm í þvermál, við 150¨C í 50-60 mínútur.
Rommkúlukerm:
100 g rjómi (1 dl)
110 g rommkúlur (22 kúlur)
100 g rjómasúkkulaði
2 eggjarauður
1 peli
rjómi
1 banani
rommkúlur
Hitið
rjómann og brytjið rommkúlurnar út í rjómann (best að nota kartöflustappara).
Setjið síðan rjómasúkkulaðið saman við og bræðið með. Hrærið eggjarauður í
glasi. Setjið svo allt í ískalda skál og þeytið í tvær mínútur (gott að geyma
kremið í ísskápnum þangað til sett er á tertuna).
Þegar tertan er orðin bökuð og köld er nánast allt kremið settá annan botninn.
Brytjið rommkúlur og einn banana í sneiðar og setjið á milli botnanna. Setjið
hinn botninn ofan á og setjið afganginn af rommkúlukreminu á hann. Þeytið svo
einn pela af rjóma, skreytið með rjómatoppum og rommkúlum ofan á. Tertan er góð
sem eftirréttur eða bara tilbúin beint úr frysti ef gesti ber að garði.