Rabarbarakaka með möndluívafi
af ms vefnum

200 g smjör
250 g hveiti
1 dl haframjöl
85 g sykur

fylling
400 g rabarbari
85 g sykur
2 egg
170 g sykur
100 g smjör
1 dl vatn
220 g hveiti
2 tsk lyftiduft
0,5 tsk möndludropar

Bræðið smjör og blandið saman við þurrefnin þannig að verði samfellt deig (má nota malaðar möndlur í staðinn fyrir haframjöl). Þrýstið deiginu jafnt út í smurt mót 24 sm í þvermál. Bakið við 200°C í 10 mín.


Fylling:
Hreinsið rabarbara og skerið í jafna bita. Blandið 1 dl af sykri saman við rabarbarann og látið bíða. Þeytið egg og sykur í stífa froðu. Bræðið smjör, bætið vatni út í og hitið að suðu. Hellið smjörblöndunni út í eggjahræruna. Blandið saman hveiti og lyftidufti og blandið því saman við eggjahræruna og bætið því næst rabarbara og möndludropum út í. Hellið blöndunni í hálfbakaða kökuskelina og bakið við 180-200°C í u.þ.b. 1 klst.