Plómur undir smjördeigsþekju
1-2 smjördeigsplötur
500 g plómur
1 msk smjör
2 msk sykur
¼ tsk kanell
2-3 msk valhnetukjarnar, grófmuldir
1 eggjarauða
Ofninn hitaður í 200 gráður og á meðan er
smjördeigið látið þiðna á
eldhúsbekknum og plómurnar helmingaðar og steinhreinsaðar (þetta getur maður
þess vegna gert í rólegheitum fyrir framan sjónvarpið). Smjördeigið flatt
út - ef notaðar eru tvær plötur eru þær látnar skarast og brúnunum þrýst
saman - þar til það er orðið eilítið stærra en formið sem nota á. Hringur
skorinn úr deiginu. Eldfast form eða bökumót smurt með smjörinu og
plómuhelmingunum raðað í það með skurðflötinn niður. Kanel og sykri blandað
saman og stráð yfir og síðan muldu hnetunum. Deigið lagt yfir og pikkað með
hnífsoddi á nokkrum stöðum. Deiglokið er svo penslað með eggjarauðu og
e.t.v. skreytt með afskurðinum - en það má líka henda honum. Sett í ofninn
og bakað í 20-25 mínútur, eða þar til deigið hefur tekið á sig gullinbrúnan
blæ. Borið fram heitt eða volgt, t.d. með sýrðum rjóma.