Piparmyntukúlur

3 stk. eggjahvítur
flórsykur
piparmyntudropar, eftir smekk

Hrærið saman í hrærivél með hnoðara eggjahvítum og flórsykri þar til blandan er orðin þétt í sér og laus frá skál. Bætið piparmyntudropum í deig eftir smekk. Auðvelt á að vera að móta kúlur úr deiginu. Ef ekki eru gerðar kúlur strax er deig vafið inn í rakan klút til að koma í veg fyrir að það þorni. Mótið kúlur og setjið á bökunarplötu. Látið standa þar til deig
hefur þornað hæfilega (um það bil ein klukkustund). Bræðið suðusúkkulaði og hjúpið kúlur með því. Geymið í frysti.