Uppskrift að piparkökuhúsi:
1,6 kg hveiti
3 dl mjólk
3 dl sykur
2 dl síróp
100 g smjörlíki
1 og 1/2 msk. kanill
1 msk. matarsóti
1 msk. Engifer
Bræðið saman sykur, síróp, smjörlíki og krydd í potti. Bætið mjólk út í og látið
síðan kólna. Blandið matarsóda saman við hveitið. Hellið sykurleginum út í og
hnoðið vel. Geymið á köldum stað til næsta dags. Teiknið mynstur af húsum á blað
og klippið út. Rúllið deigið út, 3 mm þykkt, og skerið út eftir mynstrinu. Bakið
á bökunarpappír á plötu við 175°C í 10-12 mínútur.
Hvernig er best að líma húsin?
Gott er að notast við bráðið súkkulaði. Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði, takið því næst þríhyrndan smjörpappír og rúllið upp í kramarhús og hellið súkkulaðinu varlega í kramarhúsið, lokið fyrir og klippið sprautugatið eftir hentugleikum. Þetta er eitt besta ráðið en sýnið þolinmæði meðan súkkulaðið storknar.
Bráðinn
sykur: Setjið sykur á pönnu og hitið upp í háan hita eða þar til sykurinn
bráðnar. Berið bráðina því næst á þá hluta hússins sem á að festa saman og
haldið við stutta stund. Þegar bráðin kólnar breytist hún í brjóstsykur. Varist
snertingu við heitan sykurinn