OSTATERTA MEÐ GRAND MARNIER OG MINTU


BOTN:

150 g smjör
50 g hrásykur
1 tsk. kakóduft
1 tsk. vinsteinslyftiduft
100 g spelthveiti
Allt hnoðað saman og sett
í hringlaga form og bakað
í 15 mínútur við 175 gráðu
hita. Kælt niður.
TERTA:
300 g rjómaostur
50 g hrásykur
4 msk. apríkósumarmelaði
(frá Himneskri hollustu)
4 msk. Grand Marnier (má sleppa)


Allt sett í hrærivél og hrært saman
og síðan í lokin eru sett um það bil 10
mintulauf út í og öllu skellt í formið og
kælt. Á meðan allt er að kólna vel eru 200
g af 70 prósent suðusúkkulaði brædd og
sett út í það 3 msk. af 10 prósent sýrðum
rjóma (það fær súkkulaðið til að glansa
og mýkjast og verður ekki eins afgerandi sætt).
Skreytið með mintulaufum og apríkósum.