Ostakaka kennd við Svartaskóg
Skel:
100 gr suðusúkkulaði, brætt
75 gr smjör, brætt
2 bollar hafrakexmylsna
Fylling:
425 gr svört kirsuber í sýrópi
400 gr rjómaostur
90 gr sykur
2 egg, aðskilin
1 msk Kirch (líkjör)
3 matarlímsblöð
3 dl rjómi, þeyttur
Ofan á:
1 msk maizenamjöl
Safinn af kirsuberjunum
Kirch eða sítrónusafi
Blandið
saman súkkulaði, smjöri og kexmylsnu. Þrýstið í botninn og upp á hliðar á
lausbotna 24 cm klemmuformi. Kælið.
Látið leka vel af berjunum og geymið safan, skerið þau í tvennt. Raðið 1/3 af
berjunum yfir kexbotninn.
Hrærið ostinn mjúkan með sykrinum. Hrærið eggjarauðunum í ásamt Kirch. Bræðið
matarlímið og blandið í hræruna.
Þeytið hvíturnar og blandið þeim varlega í hræruna með sleikju og blandið
rjómanum síðast varlega saman við.
Setjið deigið yfir kexbotninn og slettið yfirborðið.
Kælið í allt að sólarhring áður en kakan er tekin úr forminu og skreytt.
Blandið maizenamjölinu saman við 3-4 msk af safanum.
Hitið það sem eftir er af safanum ásamt Kirch. Látið suðuna koma upp, dragið af
hitanum og hrærið maizenamjölinu saman við. Setjið yfir hitan aftur og látið
suðuna koma upp, hrærið í allan tímann.
Setjið berin sem eftir eru út í sósuna og berið hana fram volga með kökunni, eða
raðið berjunum ofan á miðja kökuna og hellið sósunni yfir.