Ostakaka Ágústu



12 stk Homebleast með súkkulaði
1/3 bolli púðursykur
50 gr smjör

Kexið mulið og hitað í potti með smjörinu og púðursykrinum, sett í mót og fryst meðan næsta lag er búið til.

200 gr rjómaostur
200 gr hnetusmjör gróft
1 bolli flórsykur

Allt þeytt saman

1 peli rjómi þeyttur og 3 stk snikkers söxuð í smátt og bætt út í rjómann.

Rjóminn með snikersinu er blandað varlega saman við hnetusmjörsblönduna.

Sett ofan á kexblönduna og fryst.

100 gr suðusúkkulaði brætt í smá rjóma.

Hellt yfir eftir á þegar allt er frosið.