Ostakaka með kaffilíkjör

1 bolli hafrakex, mulið
3 msk sykur
5 msk smjör, brætt
750 g rjómaostur
4/5 bolli sykur
3 egg
1/2 bolli kaffilíkjör

Hitið ofninn í 175°C. Setjið bökunarpappír í botninn á 24 sm. klemmuformi. Blandið saman kexmylsnu, sykri og smjöri og þrýstið í botninn á forminu. Hrærið rjómaostinn mjúkan með sykrinum. Bætið eggjunum í einu og einu og hrærið vel í á milli. Blandið líkjörnum saman við. Hellið hrærunni yfir kexmylsnuna og bakið í 50-60 mín. Látið kökuna kólna í nokkrar klukkustundir áður en hún er tekin úr forminu.