Ostakaka með jarðaberjum

1/4 bolli smjör, brætt
1 1/4 bollar súkkulaðikex, mulið
500 g rjómaostur
2 msk sykur
40 g appelsínuhýði, rifið
1 bolli rjómi, þeyttur
600 g jarðaber
70 g rifsberjahlaup

Blandið saman smjöri og kexmylsnu. Þrýstið í botn og upp með brúnunum á lausbotna klemmuformi. Hrærið rjómaostinn mjúkan með sykri, bætið safa og berki saman við. Blandið rjómanum síðast saman við. Jafnið hræruna í kexskelina og raðið jarðaberjunum yfir. Hitið rifsberjahlaupið og penslið yfir berin. Kælið.