Ostakaka með hvítu súkkulaði og passíuávöxtum

100 g sætt heilhveitikex
50 g smjör
250 ml rjómi
250 g rjómaostur
250 g mascarpone ostur
80 g sykur
500 g hvítt súkkulaði brætt í vatnsbaði
6 passíuávextir (ef vill)
 
Myljið kexið og hellið bræddu smjörinu yfir það og hrærið saman. Þrýstið kexmylsnunni í botninn á lausbotna formi (20 cm) sem klætt er með plastfilmu að innan. Kælið botninn í ísskáp. Léttþeytið rjómann og bætið síðan afganginum af hráefninu saman við þar til blandan verður mjúk. Gætið þess að þeyta hana ekki of lengi. Hellið henni yfir kexið og kælið kökuna í minnst 3 klst í ísskáp. Berið kökuna fram með aldinkjötinu sem skafið hefur verið úr ávöxtunum.