Ostakaka Húsasmiðjunnar

1 kassi Oreo kex (174gr)
100 gr smjör
50 gr hakkaðar pecan hnetur
600 gr Philadelphia rjómaostur
1,5 bollar mjólk
1 bolli strasykur
2 tsk DDS vanillusykur
1 dl Royal vanillubúðingur
1 poki (200 gr) Anton Berg karamellu molar
Rjómi, u.þ.b. ½ dl

Aðferð
Blandið saman kexi, smjör og pecanhnetum og setjið í botninn á 22 cm springformi. Hrærið rjómaostinn þangað til hann er orðinn léttur og blandið mjólk saman við, blandan á að vera nokkuð létt. Blandið því næst strásykri og vanillusykri saman við og síðast vanillubúðingnum. Hrærið þessu öllu saman í u.þ.b 2 mínútur og hellið ostablöndunni yfir kexblönduna. Frystið. Bræðið saman karamellumola og rjóma þar til það er seigfljótandi og hellið því yfir frosna ostakökuna. Látið kökuna þiðna og berið hana fram.