Orkneyskir karamellubitar

125 g smjör
100 g púðursykur
1 msk síróp
175 g hveiti
1 tsk lyftiduft
50 g hnetur, grófmalaðar
75 g rúsínur eða kúrennur
1/2 tsk vanilluessens
1 egg

Glassúr

200 g sykur
100 ml matreiðslu- eða kaffirjómi
1 msk smjör

Ofninn hitaður í 170 gráður. Smjör, púðursykur og síróp sett í pott og hitað
þar til allt er bráðið. Hrært oft á meðan. Látið sjóða í 2-3 mínútur en
síðan tekið af hitanum og látið kólna dálítið. Þá er blandan þeytt í
hrærivél, með handþeytara eða í matvinnsluvél. Hveiti, lyftidufti, hnetum og
rúsínum eða kúrennum hrært saman við ásamt vanilluessens og að lokum er
slegnu eggi hrært saman við. Hellt í smurt, ferkantað form, ekki mjög stórt,
sett í ofninn og bakað í 25-30 mínútur, eða þar til kakan er svampkennd og
farin að losna frá börmunum. Þá er hún tekin út og látin kólna. Skorin í
12-16 bita. Kökuna má borða eins og hún er (en þá er hún dálítið þurr),
setja venjulegan flórsykursglassúr á hana þegar hún er köld eða nota
glassúrinn sem hér kemur uppskrift að og þá er honum hellt heitum yfir volga
kökuna.

Glassúr
Allt sett í pott, hitað að suðu, látið sjóða í nokkrar mínútur og hrært
stöðugt. Þegar blandan fer að þykkna ögn er potturinn tekinn af hitanum og
heitum glassúrnum hellt yfir kökuna. Hún er þá ekki skorin í bita fyrr en
glassúrinn er farinn að setjast (en hann storknar ekki alveg).