Múrsteinar


400 gr smjörlíki
200 gr sykur
4 eggjarauður
500 gr hveiti
1/2 tsk hjartasalt

Ath! Deigið verður að hnoða daginn áður og kæla.
Deigið er hnoðað létt saman, rúllað í aflangar rúllur. Eftir að búið er að kæla, eru rúllurnar skornar í fremur þunnar kökur.
Síðan er marengs sprautað ofan á og heslihnetusneið stungið í.
Bakað v/200° þar til eru ljósbrúnar.

Í marengsinn er:

2 eggjahvítur
250 gr flórsykur
þetta þeytt mjög vel saman