Múffur með súkkulaði hnetusmjöri
1 bolli
hveiti
1 sykur
1⁄4 bolli olía
½ bolli mjólk
1⁄3 bolli ósætt kakóduft
½ tsk. Salt
1 tsk. Lyftiduft
1 tsk. Matarsódi
1 egg
1 tsk. vanillu essens
½ bolli sjóðandi vatn
sletta af hnetusúkkulaðismjöri (til dæmis Nutella)
Aðferð: Hitið ofninn í 180 gráður. Berið olíu í múffuformin eða notið pappírsform, en þá er betra að nota þrjú saman svo múffan haldi sínu formi. Öllu hrært saman nema síðustu tvö hráefnin. Sjóðandi vatninu hellt út í deigið og hrært vel. Deigið verður nokkuð þunnt miðað við hefðbundið skúffukökudeig. Hellið deiginu í formin, gætið þess að fylla þau ekki meira en tvo þriðjunga. Setjið smáslettu af hnetusúkkulaðismjöri ofan í hverja múffu og hyljið með smádeigi. Bakið í 180 gráðu ofni í um það bil 20 mínútur. Prófið að stinga tannstöngli í nokkrar og ef hann kemur hreinn upp úr ættu þær að vera klárar. Takið múffurnar úr ofninum og kælið í að minnsta kosti 10 mínútur.