Múffur með hvítu súkkulaði og hindberjum

Smjör 75 g
Sykur 2,5 dl.
Egg 2 stk.
Sýrður rjómi 18% 3 dl
Lyftiduft 1,5 tsk.
Hveiti 4,5 dl
Kakó 2 msk.
Hindber 125 g
Hvítt súkkulaði 125 g

Hrærið saman sykri og smjöri. Setjið eggin eitt í einu og síðan sýrða rjómann. Sigtið þurrefnin út í, hrærið saman. Brytjið hvíta súkkulaðið gróft. Blandið hindberjum og súkkulaði varlega
saman. Bakist í múffuformum 30 mín. við 180 gráður ca. 20 stk.