Muffins með súkkulaði- og hnetukremi

2 1/2 dl möndlumjólk, sojamjólk, hrísmjólk eða mjólk
2 tsk sítrónusafi
1 1/2 dl agave síróp
3/4 dl kaldpressuð kókosolía
1 tsk vanilluduft
2 1/2 dl spelt t.d. fínt og gróft til helminga
3/4 dl hreint kakóduft
1 1/2 tsk vínsteinslyftiduft
1/4 tsk Himalaya- eða sjávarsalt

Hitið ofninn í 180°C. Setjið mjólkina í matvinnsluvél ásamt sítrónusafa, agavesírópi, kókosolíu og vanilludufti og hrærið þar til þetta verður létt og freyðandi.
Blandið þurrefnunum saman í skál, hellið vökvablöndunni út í og hrærið saman.

Setjið í ykkar uppáhalds muffins form eða muffins bréf og bakið í um 18-20 mín. Eða þar til þetta er alveg gegnum bakað. Ef þið ætlið að hafa krem á þeim er best að láta þau kólna áður en það er sett á.

Súkkulaði- og hnetukrem:
1/2 dl agave síróp
3/4 dl kaldpressuð kókosolía
1 dl hreint kakóduft
1 msk hnetusmjör eða tahini

Hrærið allt saman í skál og setjið kremið ofan á kökuna þegar þær hafa kólnað.