Morgunmúffur

1 1/2 bolli hveiti
1/2 bolli heilveiti
1 1/4 bolli púðursykur
1 msk. Kanil
2 tsk. Lyftiduft
1/2 tsk. Matarsódi
1/2 tsk. Salt
2 bollar rifnar gulrætur
1 epli, flysjað, hreinsað og skorið í litla teninga
1 bolli rúsínur
hálfur banani, saxaður í bita
1 egg
eggjahvítur úr 2 eggjum
1/2 bolli eplamauk
1/4 bolli olía
1 msk. vanillu essens
2 msk. saxaðar valhnetur

Aðferð: Hitið ofninn í 190 gráður. Berið olíu í múffuformin eða notið pappírsform, en þá er betra að nota þrjú saman svo múffan haldi sínu formi. Gerið ráð fyrir um það bil 18 múffum. Hrærið saman eggjum, eggjahvítum, eplamauki, olíu og vanillu í skál. Hrærið saman þurrefnunum í annarri skál; hveiti, sykur, kanil, lyftidufti, matarsóda og salti. Hrærið út í gulrótunum, eplum og rúsínum og blandið síðan eggjablöndunni saman við. Hellið deiginu í formin og gætið þess að fylla ekki meira en tvo þriðjunga. Dreifið valhnetunum yfir. Bakið í 190 gráðu hita í um það bil 17 til 20 mínútur, eða þar til að múffurnar eru brúnar. Mikilvægt er að þær fái að vera í friði fram að þeim tíma svo þær lyfti sér almennilega. Prófið að stinga tannstöngli í nokkrar og ef hann kemur hreinn upp úr þá ættu þær að vera klárar. Takið múffurnar úr ofninum og kælið í að minnsta kosti 10 mínútur