Möndlu muffins með jarðaberjakremi
3 dl spelt, gjarnan fínt og gróft til helminga
1 1/2 dl fínmalaðar möndlur (gott að þurrista þær fyrst í ofni við 200°C í
u.þ.b. 4-5 mín)
1 1/2 tsk vínsteinslyftiduft
1/2 tsk kanill
1/2 tsk hreint vanilluduft
1/4 - 1/2 tsk Himalaya- eða sjávarsalt
1 3/4 bolli möndlumjólk, hrísgrjónamjólk eða mjólk
1 msk möluð hörfræ
3/4 dl kaldpressuð kókosolía
1 1/2 dl agave síróp
Hitið ofninn í 180°C, blandið saman í skál spelti, möluðum möndlum,
vínsteinslyftidufti, kanil, vanillu og salti.
Setjið mjólk, möluð hörfræ, kókosolíu og agave síróp í matvinnsluvél og hrærið
örlitla stund.
Hellið síðan saman við þurrefnablönduna og blandið. Setjið í smurð muffins-form
eða bréf form og bakið við 180°C í um 20-25 mín.
Jarðaberjakrem:
250 g frosin jarðaber
1/2 dl agave síróp
2 dl kasjúhnetu, lagðar í bleyti í a.m.k. 2 klst.
1/4 dl kaldpressuð kókosolía (í fljótandi formi)
Setjið jarðaberin í matvinnsluvél ásamt agave sírópi og blandið vel saman. Bætið
kasjúhnetum út í og hrærið vel.
Setjið að lokum kókosolíuna við og blandið. Setjið kremið í ísskáp í um 15 mín
áður en þið smyrjið því á kökurnar.