Mömmukökur
125 g smjörlíki
125 g sykur
250 g sýróp
500 g hveiti
2 tsk natron
1 tsk engifer
1 egg
Sykur, sýróp og smjörlíki er hitað saman í potti og síðan kælt. Egginu er
hrært saman við.
Þurrefnum er síðan bætt saman við og deigið hnoðað.
Gott er að láta deigið standa í kæli í lágmark þrjá tíma áður en það er flatt
út. Síðan er deigið flatt út og stungnar út kökur (gott er að nota lítið glas).
Bakið við ca 180-200°C í ca 5-10 mínútur. Þegar kökurnar eru alveg kaldar er
sett smjörkrem á milli.
Kremið er búið til úr smjöri og flórsykri.