Mangóterta Díu í smjördeigi
Ofn 200-225
Byrja á því að þekja form (td. Bökuform) vel að innan með smjördeigi, fylla vel
allar hliðar og upp á barma, og látið standa við stofuhita meðan annað er
tilreitt. Botninn pikkaður með gaffli.
Formið er síðan sett í kæliskáp og látið standa þar í a.m.k. 15 mínútur. Að þeim
loknum er því stungið í ofn og bakað í max 10 mínútur (225 gráður) eða þar til
smjördeigið er farið að lyfta sér. Þá er formið tekið út og hitinn á ofninum
lækkaður niður í 200.
Ofan á botninn er síðan þessi blanda sett ( blanda a sameinuð b):
a. Blanda öllu þessu saman:
2 eggjarauðum
250 gr kotasælu
2 msk kartöflumjöli
4 msk flórsykri
rifinn börk af einni sítrónu
1 tsk vanillusykur
(2 msk romm, ef vill)
b. Því næst eru eggjahvíturnar stífþeyttar saman við ½ dl sykur og blandað
varlega saman við fyrri blöndu, a.
Mangóávöxtur skorinn í báta (hægt að nota hvaða ávöxt sem er, ég hef líka prófað
ferskjur / nektarínur og gefist vel) og raðað yfir.
Bakað í miðjum ofni í ca 20-25 mínútur.
Flórsykri dreift yfir áður en kakan er borin fram.
Góð, bæði volg og köld með ís / rjóma.