Lúsíukransar
3 dl mjólk
1 g saffran
50 g perluger
150 g sykur
125 g smjör eða smjörlíki
700 g hveiti
1 egg
Salt
Rúsínur
Bræðið smjörið í potti og bætið mjólk og saffrani saman við. Hitið að
37°C. Notið hitamæli því rétt hitastig er afar mikilvægt. Hellið
blöndunni yfir gerið og bætið svo hveiti, sykri og salti saman við svo úr verði
mjúkt deig. Breiðið klút yfir deigið og látið lyfta sér í hálftíma. Stráið
hveiti á borðplötu og hnoðið deigið upp úr því. Skiptið því upp í 25-30 hluta og
búið til litlar bollur. Leyfið þeim að lyfta sér í nokkrar mínútur. Hnoðið
hverja bollu í deigpylsu og búið til snúða. Troðið nokkrum rúsínum inn í deigið.
Látið Lúsíukransana lyfta sér í fjörtíu mínútur. Þeytið eggið með nokkrum
saltkornum og penslið Lúsíukransana með því. Bakið við 250°C í 5-10 mínútur þar
til kransarnir eru ornir gullinbrúnir. Látið kólna á ofngrind undir viskustykki.