Lion bar kökur
100 g Lion bar( um 2 stór )
100 g suðusúkkulaði, saxað
150 g púðursykur
80 g smjörlíki
1 egg
160 g hveiti
1/4 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
smá vanilludropar
Allt hrært í kássu, Lion barið sett síðast út í svo það fari ekki alveg í mauk.
Sett á plötu með teskeið, um 1/2 -1 tsk í köku, ágætt bil á milli því þær renna
út. Bakaðar við 175°C í 8 mín. Ekki of lengi því þá verða þær harðar. Mæli 100 %
með þessum kökum, endilega prófið.