Lakkrístoppar

2 eggjahvítur

200 g púðursykur

150 g súkkulaði (dökkt eða rjómasúkkulaði)

150 g lakkrískurl

 

Hitið ofninn í 170°C og stillið á undir- og yfirhita. Athugið að öll áhöld sem notuð eru við stíf þeytingu á eggjahvítum verða að vera tandurhrein og þurr. Það má ekki vera arða af rauðu með hvítunum, annars stíf þeytast þær ekki. Þeytið eggjahvíturnar með sykrinum þangað til hægt er að hvolfa skálinni án þess að deigið hreyfist. Saxið súkkulaðið gróft niður og blandið saman við stífþeyttu eggjahvíturnar ásamt lakkrískurlinu. Setjið á plötu með teskeið en passið að hafa toppana afar litla því þeir stækka um helming þegar þeir eru bakaðir. Bakið við 170°C í 9 mínútur. Látið kólna alveg á plötunni áður en þið losið toppana varlega með kökuspaða. Raðið á kökudisk.